Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Iris Kramer Quartet

  • 31.10.2024, 20:00 - 21:30, Tónlistarskóli Árnesinga

Tónleikar í sal Tónlistarskóla Árnesinga, Eyravegi 9.

Nýstofnaður kvartett frá Þýskalandi, Iris Kramer Quartet. Iris Kramer er mikill Íslands vinur sem hefur m.a. búið og starfað sem tónlistarkennari í Bolungarvík. 

Iris Kramer, trompetleikari og tónskáld er Íslandsvinur í orðsins fyllstu merkingu. Hún bjó og starfaði við kennslu og spilamennsku á Vestfjörðum í nokkur ár og ferðast um landið á hverju ári. Hún hefur komið víða við á sínum tónlistarferli og stofnaði meðal annars fyrsta bigband Þýskalands eingöngu skipað konum. Hún stofnaði á sínum tíma fyrsta bigband eingöngu skipað konum en síðari árum hefur hún sinnt tónsmíðum í auknum mæli og það var á viðburði sem helgaður var konum í jazztónlist sem Henriette Thorunn bassaleikari, nýútskrifuð úr jazzdeild tónlistarháskólans í Frankfurt, kynntis tónlist Irisar. 

Upp úr því var stofnaður kvartett sem hélt fyrstu tónleikana í Hamborg vorið 2023 og nú eru fjöldi spennandi verkefna framundan. Tónlistin er létt og leikandi sveifla undir áhrifum frá íslenskri náttúru, veðurfari og menningu. Kvartettinn flytur að mestu frumsamið efni, en einnig íslenska tónlist. 

Sérstakur gestur á tónleikum er Hlín Pétursdóttir Behrens söngkona sem er Sunnlendingum að góðu kunn, hóf tónlistarnám sitt við T.Á. og kenndi þar um árabil. Þær Iris hafa áður starfað saman í Þýskalandi og er hluti efniskrárinnar úr sameiginlegri smiðju þeirra.

Tónleikarnir eru styrktir af Þýska sendiráðinu á Íslandi, Íslendingafélaginu í Hamborg og Jazzbüro Baden Württemberg.

Fram koma:
Iris Kramer, trompet, Flügelhorn, söngur
Hlín Pétursdóttir Behrens, söngur
Henriette Thorunn, kontrabassi, rafbassi
Jonas Oppermann, píanó
Jan Hauf, slagverk

Aðgangseyrir 3.500 krónur


Viðburðadagatal

16.9.2025 - 24.9.2025 Litla Leikhúsið Grunnnámskeið í leiklist / Theater workshop

Leikfélag Selfoss verður með leiklistarnámskeið fyrir nýliða og þá sem reyndari eru í haust / Leikfélag Selfoss will be hosting a theatre workshop this fall for both beginners and those with more experience

Sjá nánar
 

18.9.2025 - 25.9.2025 Selfosskirkja Gefðu íslensku séns - Hraðstefnumót við íslenskuna 18. - og 25. september

Fyrirkomulagið verður eins og á hraðstefnumóti eða svokölluðu speed-dating nema hvað markmiðið er að æfa sig í íslensku

Sjá nánar
 

23.9.2025 - 30.9.2025 Sundhöll Selfoss Íþróttavika Evrópu - Zumba sundlaugarpartí í Sundhöll Selfoss 27. september

Í tilefni af íþróttaviku Evrópu dagana 23. - 30. september 2025 þá verður boðið upp á Zumba tíma með Gunnhildi Þórðardóttur í Sundhöll Selfoss.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica