Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Jól í Húsinu á Eyrarbakka

  • 28.11.2021 - 24.12.2021, Byggðasafn Árnesinga

Byggðasafn Árnesinga býður upp á notalega jólastemningu á aðventunni. Upplestur rithöfunda og skálda, bókastund fyrir börn, jólaævintýri, hátíðleg jólalög og jólasýning Hússins. Jólaandinn verður á Eyrarbakka!

Skáldastund. Sunnudaginn 28. nóvember, klukkan 16:00, lesa höfundar úr nýútkomnum verkum sínum. Í ár heimsækja Húsið þau Harpa Rún Kristjánsdóttir, Einar Már Guðmundsson, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Haukur Ingvarsson, Inga Kristjánsdóttir og Benedikt Jóhannsson.

Bókastund fyrir börnin! Laugardaginn 4. desember, klukkan 15:00, koma Bergrún Íris Sævarsdóttir og Gunnar Helgason í skemmtilega heimsókn. Við lofum fjörugum upplestri og fræðandi spjalli um bækur, lestur og teikningar.

Hátíðleg jólastemning. Sönghópurinn Lóurnar mætir laugardaginn 11. desember og syngur undurfögur jólalög og töfra fram sannkallaðan jólayl í hjörtum þeirra sem á hlýða. Tónleikarnir verða frá kl. 13:00 - 14:00.

Ævintýrið um Augastein. Jólaævintýrið dásamlega eftir Felix Bergsson verður aðgengilegt alla aðventuna á heimasíðu safnsins en jólasagan er í formi jóladagatals sem gaman er að sameinast um að fylgjast með á aðventunni. Sagan byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán sem við þekkjum svo vel og í sögunni finnum við svarið við því af hverju börn hér á landi hafa mörg hver sett skó út í glugga rétt fyrir jól.

Jólasýning Byggðasafns Árnesinga verður opin frá 13:00 – 17.00 helgarnar 27. - 28. nóv., 4. - 5. des., 11. - 12. des. og 18. des., aðgangur ókeypis. 

Á öðrum tímum er opið eftir samkomulagi.  


Viðburðadagatal

2.10.2025 - 30.10.2025 Bókasafn Árborgar Stokkseyri Gömlu albúmin á Stokkseyri

Komdu að gramsa og leita að kunnuglegum andlitum alla þriðjudaga og fimmtudaga í október.

Sjá nánar
 

5.10.2025 - 2.11.2025 Byggðasafn Árnesinga Menningarmánuðurinn október á Byggðasafni Árnesinga

Í menningarmánuðinum verður ýmislegt í boði á Byggðasafni Árnesinga. Leiðsagnir verða á sumarsýningu safnsins „Yfir beljandi fljót“, ratleikur verður í boði alla sunnudaga og fróðlegir fyrirlestrar verða í varðveisluhúsi safnsins. Einn sunnudag býður Þjóðbúningafélag Íslands upp á glæsilega dagskrá og Leikfélag Eyrarbakka stendur fyrir einstöku bíókvöldi.

Sjá nánar
 

15.10.2025 - 29.10.2025 Bókasafn Árborgar, Selfoss Sundsýning á Bókasafni Árborgar Selfossi

Þann 15.- og 29. okt verður farið yfir fyrstu ár Sunddeildar Umf. Selfoss og frumherja deildarinnar minnst.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica