Jólaævintýri í Hallskoti

  • 6.12.2025, Hallskot

Þann 6. desember, klukkan 17:00, breytist Hallskot í lifandi jólaævintýraheim þar sem börn og fjölskyldur fá að upplifa töfrandi ferðalag í gegnum upplýstan skóg.

Börnin leggja af stað með sögumanninum henni Grýlu, sem leiðir þau um króka og kima skógarins í leit að jólasveini sem hefur… já, týnst sporlaust!

Á leiðinni mæta þau alls konar ævintýrapersónum sem birtast í skóginum, sumar vingjarnlegar, aðrar leyndardómsfullar og hver og ein með sitt hlutverk í leitinni.

Leiðin sjálf verður skreytt með fallegum jólaljósum sem skapa töfrandi stemmingu í vetrarmyrkrin. Að lokum syngja börnin með jólasveininum með undirleik og ef vel liggur á gestum verður frábært tækifæri til þess að gæða sér á nesti og kakó eftir viðburðinn. Takið endilega með ykkur kakó á brúsa ef stemning er fyrir því.

Við hvetjum bæði börn og fullorðna til að koma með vasaljós eða ennisljós, ekki síma, því við viljum að ferðalagið sé skjálaust og lifandi.

Barnakór Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri mun koma fram og fylla skóginn ljúfum jólatónum sem gefa ferðalaginu enn meiri sjarma.

Við sem stöndum að viðburðinum, Leikfélag Eyrarbakka, Ungmennafélag Eyrarbakka og Skógræktarfélag Eyrarbakka í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg, viljum að sem flest börn geti notið ævintýrsins og því verður frítt inn. Aðgengi er háð veðri en engin þrep verða inn í skóginn.

Komið með fjölskylduna, kertaglampa í augunum og hlýjan hug og leyfið jólaandanum að leiða ykkur í gegnum jólaskóginn í Hallskoti!

Jolaaevintyri-i-Hallskoti


Viðburðadagatal

1.10.2026 - 31.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sautjánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Sjá nánar
 

29.10.2026 Grænumörk 5 Menningarviðurkenning Árborgar 2026

Sveitarfélagið Árborg veitir Menningarviðurkenningu Árborgar fimmtudaginn 26. október kl. 14:30 í Grænumörk, Selfossi. 

Sjá nánar
 

29.10.2026 Konubókastofa Nornasveimur á Konubókastofu með Kristínu Rögnu

Nornasveimur á Konubókastofu með tilheyrandi kukli og galdraspeki

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica