Nornasveimur á Konubókastofu með Kristínu Rögnu
Nornasveimur á Konubókastofu með tilheyrandi kukli og galdraspeki

Kristín Ragna Gunnarsdóttir kynnir fyrir okkur bók sína og spilastokk Tarotspil norrænna goðsagna.
Kristín hefur endurhugsað tarotspilin út frá sjónarhorni norrænnar goðafræði og byggir bókina á eddukvæðum og Snorra-Eddu en fylgir forskrift hefðbundinna Rider-Waite-Smith tarotspila.
Nornin á Eyrarbakka, Helga Sif Sveinbjarnardóttir, ætlar að segja dálítið frá sér, sínum hæfileikum og starfi.
Konubókastofu á Eyrarbakka, fimmtudaginn 29. október kl. 19:30
Umsjón hefur nýr bókavörður á bókasafninu á Eyrarbakka, Ingibjörg Rósa Björnsdóttir.




