Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Jónas Sig á Haustgildi Markús & The Diversion Sessions hitar upp

  • 6.9.2026, BrimRót

Jónas Sigurðsson mun mæta með hljómsveit og halda tónleika í Stokkseyrarkirkju á Haustgildi sunnudaginn 6.9. Kl. 17. Markús & The Diversion Session hitar upp en þeir hafa verið að senda frá sér nýtt efni nýlega.

Jónas þarf vart að kynna. Hann kom fyrst fram á sjónarsvið íslenskrar tónlistar með hljómsveitinni Sólstrandagæjunum en svo skaut honum aftur upp á stjörnuhiminn þegar hann gaf frá sér plötuna Þar sem malbikið svífur mun ég dansa. Hún kom út 2007 og nokkrum árum seinna gaf hann út efni sem hann hafði unnið með lúðrasveit Þorlákshafnar, sínum heimabæ. Mögnuð textagerð og sterkar melódíur hafa verið einkennandi fyrir tónlist Jónasar sem nær að snerta streng í íslenskri þjóðarsál.

Markús Bjarnason hefur komið víða við í íslenskri tónlist. Hann hefur verið fararbroddi hljómsveita á borð við Sofandi og Skáta. Jafnframt hefur hann unnið að sínu sólóefni. Hljómsveitin hans Diversion Sessions hefur spilað með honum í ýmsum myndum í mörg ár. Núna er hljómsveitin að gefa út glænýtt efni sem hefur fengið góðar viðtökur hjá hlustendum.

Tónleikarnir eru hluti af uppskeru- og menningarhátíðinni Haustgildi á Stokkseyri.

Haustgildi hefur verið haldið á Stokkseyri seinustu ár. Haustgildi – menning er matarkista – er haldin á Stokkseyri fyrstu helgina í september ár hvert. Haustgildi er uppskeruhátíð í víðri merkingu sem fagnar hausti og uppskeru með það að markmiði að tvinna saman menningarviðburði og markað í fjölskylduvæna upplifun við ströndina. Menning er nefnilega matarkista.

Miðasala er hafin á tix.is


Viðburðadagatal

6.9.2026 - 29.10.2026 Selið Teikninámskeið fyrir fullorðna og unglinga

ARRA stúdíó, sem er rekið af myndlistarkonunum og hönnuðunum Ragnheiði Ástu Valgeirsdóttur og Amy Alice Riches, er að setja af stað 8 vikna myndlistarnámskeið á Selfossi. Í haust 2026 verða í boði tvö teikninámskeið fyrir fullorðna og ungmenni í "Teikningu I". Seinasti skráningardagur er 6. september 2026.

Sjá nánar
 

22.9.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Komdu að tala íslensku

 Komdu að tala íslensku hefst aftur þriðjudaginn 8. september! / Komdu að tala íslensku is restarting on Tuesday September 8! Everybody welcome!

Sjá nánar
 

29.9.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Komdu að tala íslensku

 Komdu að tala íslensku hefst aftur þriðjudaginn 8. september! / Komdu að tala íslensku is restarting on Tuesday September 8! Everybody welcome!

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica