Leikfélag Selfoss | Grandavegur 7

  • 7.11.2026, 20:00 - 22:30, Litla Leikhúsið
  • 8.11.2026, 18:00 - 20:30, Litla Leikhúsið
  • 13.11.2026, 20:00 - 22:30, Litla Leikhúsið
  • 15.11.2026, 18:00 - 20:30, Litla Leikhúsið

Leikfélag Selfoss sýnir leikverkið Grandaveg 7 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur og leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur.

Fjölskyldusaga þriggja kynslóða þar sem fortíð og nútíð fléttast saman.

Leikstjóri sýningarinnar er Rúnar Guðbrandsson. Hann hefur áður leikstýrt þremur sýningum hjá Leikfélagi Selfoss: Sólarferð, Kirsuberjagarðinum og Djöflaeyjunni.

Húsið að Grandavegi 7 geymir sögu þriggja kynslóða – íslenska fjölskyldusögu um brennandi ást, sáran missi og leyndarmál sem tíminn fær ekki afmáð. Fortíð og nútíð fléttast saman, minningar vakna til lífsins og mörkin milli veruleika og draums verða óljós.

Hin unga Fríða er gædd skyggnigáfu og sér heiminn öðrum augum en flestir. Í gegnum hana kynnumst við áhrifamikilli örlagasögu sem á sér djúpar rætur í íslenskum veruleika og afhjúpar smám saman tengsl persónanna við fortíðina.

Sýningin er ekki við hæfi barna yngri en 13 ára.

Aðeins fáar sýningar, svo tryggðu þér miða sem fyrst.

Sýnt er í Litla leikhúsinu við Sigtún.

Miðaverð: 3.900 kr.

Hópatilboð fyrir 6 og fleiri: 3.500 kr.

Miðasala fer fram á tix.is - https://tix.is/event/22570/grandavegur-7

Einnig er hægt að hafa samband á midasala@leikfelagselfoss.is

Sími miðasölu: 696-2787

Plakat-auglysing


Viðburðadagatal

1.10.2026 - 31.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sautjánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Sjá nánar
 

28.10.2026 BrimRót Saga Stokkseyrar | Brimrót Stokkseyri

Enduropnun á vefsíðu Bjarka Sveinbjörnssonar um sögu Stokkseyrar.  Miðvikudagurinn 28. okt kl.19:30.

Sjá nánar
 

29.10.2026 Grænumörk 5 Menningarviðurkenning Árborgar 2026

Sveitarfélagið Árborg veitir Menningarviðurkenningu Árborgar fimmtudaginn 26. október kl. 14:30 í Grænumörk, Selfossi. 

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica