Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Ljóðakistan

  • 24.4.2026, Bókasafn Árborgar, Selfoss

Fuglinn Ljóð og hagamúsin Lag opna ljóðakistuna sína á Bókasafni Árnesinga á Selfossi föstudaginn 24. apríl kl. 14.15 - 15:30 

Lifandi söngstund fyrir börn á aldrinum 1 – 5 ára og forráðafólk þeirra. 

Við fylgjumst með fuglinum Ljóði og hagamúsinni Lagi í ævintýraferð í leit að sínum uppáhalds vísum og syngjum valdar vísur úr Ljóðakistunni. Í gegnum söng, hreyfingu og samveru eru börnin leidd inn í heim ljóða, myndlist og ímyndunarafls.


Ljóðakistan er safn tuttugu fallegra, handteiknaðra spjalda með klassískum íslenskum vísum. Á framhliðinni hitta börnin Ljóð og Lag sem leiða þau í gegnum efnið á leikandi og hlýlegan hátt og á bakhliðinni er texti vísunnar. Þannig hvetur Ljóðakistan til söngs, lesturs og dýrmætrar samveru milli kynslóða.

Ljóð og Lag er íslenskt menningarverkefni sem sameinar list, sögur, leik, ljóð og tónlist. Í heimi þar sem gervigreind og hraði ráða ríkjum viljum við bjóða börnum og fjölskyldum rými fyrir samveru, tengsl og sköpun.. Í heimi þar sem hraði og gervigreind ráða ríkjum skapar verkefnið rými fyrir ró, sköpun og tengsl og stendur vörð um það sem við megum ekki missa: Tunguna, menninguna og mannleg tengsl.

58f7d26b-2d66-4221-b602-36044fdb8217_5000x5000

Ljóðakistan er safn 20 fallegra, handteiknaðra spjalda með íslenskum vísum.

Ljóð og Lag

Til að gera hugmyndina lifandi fyrir börn fæddust tvær persónur: fuglinn Ljóð og hagamúsin Lag.

  • Ljóð safnar orðum í vængina sína og flýgur með þau út í heiminn.

  • Lag hlustar á tónlistina og taktinn í náttúrunni, í lækjum, vindinum og hjartslættinum.

Saman urðu þau táknmynd fyrir það sem við viljum skapa: rými fyrir ró, sköpun og dýrmætar samverustundir á milli kynslóða. Við viljum að öll börn geti séð sig í persónunum; þess vegna eru þau dýr, ekki manneskjur, og bera kynlaus nöfn.

F7ac0b44-022f-474d-8803-e3990da2972a_2312x2312

Júlía, Sædís Harpa og Halldóra.


Viðburðadagatal

13.6.2026 - 21.6.2026 Eyrarbakki Opnunarhátíð Alþjóðlegu listahátíðarinnar Oceanus Stórsjór 2026 á Eyrarbakka

Afrakstur vinnu listamannanna sýndur, eftir mánaðardvöl á Eyrarbakka / 
The artists' work is on display, after a month-long stay in Eyrarbakki

Sjá nánar
 

15.6.2026 - 19.6.2026 Tónsmiðja Suðurlands Sumarnámskeið í myndlist: Persónusköpun

Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: Myndlist; Persónusköpun
Kennari: Sindri Mjölnir
15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00

Sjá nánar
 

15.6.2026 - 19.6.2026 Tónsmiðja Suðurlands Sumarnámskeið: D&D Grunnur fyrir Leikjameistara (Dungeon Master)

Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: D&D Grunnur fyrir Leikjameistara (Dungeon Master)
Kennari: Hafþór Agnar Unnarsson
15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica