Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Með blýantinn að vopni | Listagjáin

  • 27.9.2024 - 10.10.2024, Listagjáin

Hefð hefur skapast fyrir því að nemendur í framhaldsáföngum í myndlist við Fjölbrautaskóla Suðurlands haldi sýningu á verkum sínum í opinberu rými. 

  • FSu02

Nú eru það nemendur úr áfanganum Teikning framhald (MYNL3TK05) sem sýna verk sín í Listagjánni á Bókasafni Árborgar á Selfossi en verkin voru unnin á vorönn 2024. 

Sýningin kallast Með blýantinn að vopni

Í áfanganum er unnið eingöngu með blýant og byggt verulega ofan á þekkingu, færni og kunnáttu frá fyrri áfanga. Áhersla var lögð á raunsæja fríhendisteikningu, formskynjun og fjarvíddartækni og unnið með áferð og andstæður í skyggingum. 

Nemendur gerðu samanburð og tilraunir með myndbyggingu út frá raunsæi, afstrakt og súrrealisma. Nemendur þurftu að íhuga fjölmarga þætti við gerð hvers verks og skiluðu sínum pælingum í formi greinargerðar í máli og myndum. 

FSu03

Fjórir efnisflokkar eru til sýningar

  1. Náttúran nær og fjær
  2. Hlutir og dýr
  3. Andlit og umhverfi
  4. Lokaverkefni

Sýningin verður í opin til 10. október á opnunartímum bókasafnsins

Hægt er að skoða fleiri listaverk eftir nemendur FSu og má í því sambandi benda á tæplega 100 metra langan vegg við bílastæði skólans. Þennan vegg hafa nemendur myndskreytt reglulega síðastliðin 10 ár og þemað verið bókmenntir, sögur og ævintýri. Í vor gekk stór hluti veggjarins í endurnýjun lífdaga og því óhætt að mæla með göngu meðfram veggnum og ekki síður að hafa ungviði með sér og leika með hugmyndaflugið.

FSu01

Það er stefna myndlistardeildarinnar að miðla verkum nemenda sem víðast og til þess höfum við vefsíðu á Facebook sem heitir FSu myndlist, nýsköpun og miðlun. Þar má sjá úrval verka og æfinga úr þeim áföngum sem við kennum. Hvort tveggja þjónar síðan sem kennsluefni og ekki síður fyrir listunnendur að njóta.

Í FSu er gott framboð skapandi námsgreina sem hver um sig bjóða fram fjölmarga ólíka áfanga. Auk myndlistar má nefna leiklist, textílhönnun, fablab, grafíska hönnun og miðlun. Hægt er að taka stúdentspróf af listalínu en það er ekki krafa að vera á listalínunni til þess að fara í þessa áfanga og skilar það sér í fjölbreyttum hópi áhugasamra nemenda í skapandi greinar. Við bjóðum áhugasöm að kynna sér málið og slást í hópinn.

FSu-logo


Viðburðadagatal

27.2.2026 - 30.4.2026 Litla Leikhúsið Skilaboðaskjóðan hjá Leikfélagi Selfoss

Miðasala er hafin á Skilaboðaskjóðuna hjá Leikfélagi Selfoss. 

Sjá nánar
 

1.3.2026 - 31.3.2026 Sandvíkursetur 45 ára afmæli Myndlistarfélagsins – 45 viðburðir í mars!

Það verður sannkölluð listaveisla á Suðurlandi í mars þegar félagið fagnar 45 ára afmæli sínu með heilum 45 sýningum og viðburðum víðsvegar um Suðurland.

Sjá nánar
 

30.3.2026 Sandvíkursetur Ungmennakvöld 18-30 ára hjá MFÁ

Ungmennakvöld MFÁ eru á mánudögum þar sem listakonan Natasja Buus leiðir kvöldin. 

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica