Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Námskeið | Samvinna eftir skilnað

  • 20.3.2023, 17:00 - 19:00, Ráðhús Árborgar

Velferðarþjónusta Árborgar býður foreldrum í Árborg upp á fjögurra daga námskeið dagana 20, 22, 27 og 29. mars 2023 frá klukkan 17:00 til 19:00 á 3. hæð í Ráðhúsi Árborgar.

Námskeiðið er fyrir alla foreldra sem vilja bæta samstarf sitt með hagsmuni barnsins að leiðarljósi undir yfirskriftinni Samvinna eftir skilnað - barnanna vegna.

Námskeiðið samanstendur af þremur þemum:

  • Foreldrar og áskoranir í tengslum við skilnað
  • Áhrif skilnaðar á börn og samskipti á forsendum barna
  • Foreldrasamvinna og samstarf í verki

Þjónustan er foreldrum Árborgar að kostnaðarlausu. Það er ekki skilyrði að báðir foreldrar barnsins nýti sér þessa þjónustu.

Umsjónarmenn námskeiðsins eru Bryndís Guðmundsdóttir MA félagsráðgjafi, Hekla Dögg Ásmundsdóttir MA félagsráðgjafi og Heiða Rún Sveinsdóttir fjölskyldufræðingur.

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið felagsthjonusta@arborg.is fram þarf að koma nafn, kennitala og símanúmer. Í kjölfar skráningar mun SES ráðgjafi hafa samband. 

Nánari upplýsingar um námsefnið er að finna á heimasíðunni https://samvinnaeftirskilnad.is/

 


Viðburðadagatal

27.2.2026 - 30.4.2026 Litla Leikhúsið Skilaboðaskjóðan hjá Leikfélagi Selfoss

Miðasala er hafin á Skilaboðaskjóðuna hjá Leikfélagi Selfoss. 

Sjá nánar
 

1.3.2026 - 31.3.2026 Sandvíkursetur 45 ára afmæli Myndlistarfélagsins – 45 viðburðir í mars!

Það verður sannkölluð listaveisla á Suðurlandi í mars þegar félagið fagnar 45 ára afmæli sínu með heilum 45 sýningum og viðburðum víðsvegar um Suðurland.

Sjá nánar
 

10.3.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Komdu að tala íslensku

Vikulegur hittingur þar sem við æfum okkur að tala íslensku á Bókasafni Árborgar Selfossi

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica