Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Kvennaráð eftir Sellu Páls | Leikfélag Eyrarbakka

  • 30.10.2026 - 15.11.2026, Rauða húsið

Leikfélag Eyrarbakka mun frumsýna leikritið Kvennaráð eftir Sellu Páls í Rauða Húsinu á Eyrarbakka þann 30. október og sýningar standa fram í miðjan nóvember.

Kvennaráð fjallar um Þorgerði, áttræða ekkju sem var stoð og stytta áhrifamikils manns í fimmtíu ár og nú vill hún breyta til. Samband hennar við einkadótturina, forstjórann Birnu, er þvingað vegna tengdasonarins sem ekkjan grunar um græsku. Er ekkjan fer að taka á eigin málum bregst Birna illa við og ásakar hina kínversk/íslensku heimilishjálp Mai um samsæri. En þegar Birna þarf a glíma við örðugar aðstæður koma móðir hennar og Mai henni á óvart.

Listrænt teymi: 

Leikstjóri: Hulda Ólafsdóttir
Höfundur: Sella Páls
Leikarar: Auður Elín Hjálmarsdóttir, Elka Long Rúnarsdóttir og Feng Hannesdóttir
Búningar: Eygerður Þórisdóttir  

Sýningar:  

föstudagur 30. okt. kl. 20
sunnudagur 1. nóv. kl. 15
laugardagur 7 nóv kl. 15
sunnudagur 8. nóv kl. 15
föstudagur 13. nóv kl. 20
sunnudagur 15. nóv. kl. 15

Sýning og sala á hannyrðum eftir konur á Eyrarbakka verður fyrir sýningar og í hléi. 

Miðarnir fara á sölu innan skamms.


Viðburðadagatal

1.10.2026 - 31.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sautjánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Sjá nánar
 

22.10.2026 - 24.10.2026 Langhúsið Menningarmiðstöð Langhúsið (Gamla kartöflugeymslan á Selfossi) | Opið hús

Það verður opið hús í menningarmiðstöðinni Langhúsið við Jórutún(áður Ártún), þar sem við ætlum að kynna húsið, sögu þess og möguleika á viðburðum i framtíðinni.

Sjá nánar
 

24.10.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Hrekkjavökuföndur með Sigurjóni | Bókasafn Árborgar Selfossi

Laugardaginn 24. október frá kl. 11-13. Öll börn og forráðamenn velkomin.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica