Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Opin vinnustofa hjá KindArt á Eyrarbakka

  • 17.10.2026, Eyrarbakki

Sigrún Lilja (KindArt) opnar vinnustofu sína að Einarshöfn 4 frá kl. 14 - 17

  • Kindart-okt

KindArt er vettvangur áhugalistamanns sem sækir innblástur sinn í hina íslensku sveit. Sem fullorðinn einstaklingur starfar Sigrún Lilja sem háskólakennari en sveitastúlkuna Sigrúnu dreymdi um að verða alvörulistamaður l Íslenska sauðkindin og hin ægifagra náttúra á æskustöðvunum Mýrdalnum eru stórir áhrifavaldar. Stíllinn er naívur og á köflum kúbískur, með einstaka gönuhlaupi í átt að abstraktinum.

Afhverju KindArt?
KindArt er leikur að orðum. Útfrá íslenskunni er vísunin nokkuð augljós; á þýsku vísar kind í barnslega einlægni og á ensku er einfaldlega talað um kærleika. Höfundaráætlunin snýst einfaldlega um að reyna að vera ,,kona sjálf."

Um Sigrúnu Lilju
Sigrún Lilja er fædd og uppalin í Mýrdal árið 1974. Í sínu opinbera lífi starfar hún sem prófessor við Háskólann á Bifröst og er doktor í félagsfræði listgreina frá Háskólanum í Exeter í Englandi. KindArt er ekkert annað en óður til æskudraums og vilji til að leyfa öðrum að njóta sem það kjósa. Nýlega flutti Sigrún búferlum að Einarshöfn á Eyrarbakka, enda spilar hafið eitt af lykilhlutverkum í hennar listsköpun. Einnig hefur hún haldið sýningar í Gallerí Listaseli á Selfossi, ásamt nokkrum einkasýningum í heimahögunum.

Íslenska sauðkindin
Íslenska sauðkindin, hvort sem fólki líkar það betur eða verr, hélt einfaldlega lífi í íslensku þjóðinni í yfir þúsund ár. Hún er skemmtilegt apparat, greindari en fólk heldur, á köflum uppátækjasöm og innan íslenska fjárstofnsins leynast kynlegir kvistir og skemmtilegir persónuleikar, enda margir forystusauðir sem gert hafa garðinn frægan og komist í sögubækur. Því á íslenska sauðkindin skilið að henni sé sýnd tilhlýðileg virðing. Foreldrar listamannsins voru bændur í blönduðu búi sem m.a. hélt sauðfé. Árið 1982 skall riðuveikin á bænum og skera þurfti niður fjárstofn sem var hálft ævistarf þeirra í ræktun. Sá stóridómur var mikið áfall. Þessar myndir eru því þakkaróður til íslensku sauðkindarinnar fyrir að hafa gert sitt í að halda Íslandi í byggð, oft við ömurlegar og nánast ómögulegar aðstæður.


Viðburðadagatal

1.10.2026 - 31.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sautjánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Sjá nánar
 
Red-Blue-and-Orange-Modern-Art-Fest-Poster-30-x-20-cm-

17.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Listaflakk um Árborg

Opnar vinnustofur listamanna í tilefni af Menningarmánuðinum október

Sjá nánar
 

17.10.2026 Selfoss EM Heima Gallerí - opin vinnustofa

Í tilefni af Listaflakki um Árborg opna Eggert & Maja vinnustofu sína í EM heima gallerí frá kl. 13 - 18.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica