Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Opnunarhátíð Barnamenningardaga í Árborg

  • 22.4.2026, Miðbær Selfoss

Barnamenningardagar verða formlega settir í miðbænum síðasta vetrardag, 22. apríl kl. 17:00 

Þar verður opnuð ljósmyndasýningin Árborg með augum barna, Blásarasveit Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi leikur undir stjórn Sæbjargar Evu Hlynsdóttur og nemendur Dansakademíunnar sýna tvö atriði úr nemendasýningu skólans sem sýnd verður í Borgarleikhúsinu 2.maí. Danskennarar og danshöfundar eru Maria Araceli og Ástrós Guðjónsdóttir og söngkennari er Kristrún Steingrímsdóttir kennari Tónsmiðju Suðurlands

Vallaskóli sýnir siguratriði Skjálftans 2025 og Rannveig Helga Kjartansdóttir og Örn Hreinsson flytja siguratriði SamZel, söngkeppni Zelsíuz. 

Verðlaun verða veitt fyrir ljósmyndakeppni, ljóðakeppni og stuttmyndakeppni.


Viðburðadagatal

1.10.2026 - 31.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sautjánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Sjá nánar
 
Red-Blue-and-Orange-Modern-Art-Fest-Poster-30-x-20-cm-

17.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Listaflakk um Árborg

Opnar vinnustofur listamanna í tilefni af Menningarmánuðinum október

Sjá nánar
 

17.10.2026 Gallerý Svartiklettur Heba Keramík opin vinnustofa

Í tilefni af Listaflakki um Árborg og Menningarmánuðinum október verður Heba með opna vinnustofu milli kl. 14 og 18 á Stokkseyri. 

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica