Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Rollusmiðja

  • 4.10.2026, Byggðasafn Árnesinga

Komdu og búðu til þína eigin rollu eða jafnvel furðuveru úr íslenskri ull. Í þessari skapandi fjölskyldusmiðju fá þátttakendur að kynnast þæfingu með nál og prófa sig áfram með náttúrulegan og skemmtilegan efnivið. Sunnudaginn 4. október frá kl. 14-16.

Rollusmiðja verður í fjárhúsi byggðasafnsins þar sem gestum á öllum aldri gefst tækifæri á að þæfa sínar eigin rollur og aðrar furðuverur úr íslenskri ull.

Auður Ösp Gilsdóttir hönnuður safnsins mun kenna gestum handtökin með þæfingarnál.

Smiðjan verður haldin í fjárhúsinu aftan við Húsið á Eyrarbakka.


Viðburðadagatal

1.10.2026 - 31.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sautjánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Sjá nánar
 

22.10.2026 - 24.10.2026 Langhúsið Menningarmiðstöð Langhúsið (Gamla kartöflugeymslan á Selfossi) | Opið hús

Það verður opið hús í menningarmiðstöðinni Langhúsið við Jórutún(áður Ártún), þar sem við ætlum að kynna húsið, sögu þess og möguleika á viðburðum i framtíðinni.

Sjá nánar
 

24.10.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Hrekkjavökuföndur með Sigurjóni | Bókasafn Árborgar Selfossi

Laugardaginn 24. október frá kl. 11-13. Öll börn og forráðamenn velkomin.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica