Sjóðurinn góði | Bókasafn Árborgar, Selfossi
Sjóðurinn góði styrkir einstaklinga og fjölskyldur sem standa höllum fæti og eiga ekki fyrir nauðþurftum fyrir jólin.
Frá 1. desember verður tekið á móti pökkum fyrir Sjóðinn góða á Bókasafni Árborgar, Selfossi. Sjóðurinn góði úthlutar jólagjöfum til hjálpar þeim sem eiga í fjárhagserfiðleikum.
Merkimiðar eru við jólatréð. Síðasti skiladagur er föstudagurinn 15. desember.