Stofnfundur Hverfisráðs Eyrarbakka

  • 8.4.2026, Samkomuhúsið Staður

Boðað er til fundar til stofnunar hverfisráðs Eyrarbakka miðvikudaginn 8. apríl, kl. 19:30 á Stað á Eyrarbakka.

Sveitarfélagið Árborg boðar til funda í hverfisráðum sveitarfélagsins í samræmi við nýjar samþykktir fyrir hverfisráð, samþykktar á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 4. febrúar 2026. Á fundunum verður farið yfir hlutverk og starfshætti hverfisráða og kosið í stjórn hvers ráðs.

Hlutverk hverfisráða er að stuðla að virku samráði sveitarfélagsins og íbúa, efla íbúalýðræði og fjalla um málefni er varða hvert hverfi sérstaklega.

Bæjarstjórn Árborgar bindur vonir við gott og farsælt samstarf við ný hverfisráð og til að stuðla að því verður tveimur bæjarfulltrúum falið að starfa með hverju ráði samkvæmt samþykktum

Kjör til stjórna hverfisráða

Íbúar hvers svæðis eru hvattir til að gefa kost á sér til setu í stjórn viðkomandi hverfisráðs. Hægt er að bjóða sig fram:

  • á fundinum sjálfum, eða

  • fyrir fundinn, með því að senda tölvupóst með upplýsingum um sig á:
    arborg@arborg.is merkt „Framboð í Hverfisráð“

Nánari upplýsingar

Samþykktir fyrir hverfisráð Árborgar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins:

www.arborg.is/samthykktir


Viðburðadagatal

1.10.2026 - 31.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sautjánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Sjá nánar
 

29.10.2026 Grænumörk 5 Menningarviðurkenning Árborgar 2026

Sveitarfélagið Árborg veitir Menningarviðurkenningu Árborgar fimmtudaginn 26. október kl. 14:30 í Grænumörk, Selfossi. 

Sjá nánar
 

29.10.2026 Konubókastofa Nornasveimur á Konubókastofu með Kristínu Rögnu

Nornasveimur á Konubókastofu með tilheyrandi kukli og galdraspeki

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica