Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026

Laugardaginn 29. ágúst

Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Stofnfundur Hverfisráðs Stokkseyrar

  • 7.4.2026, Barnaskólinn | Stokkseyri

Boðað er til fundar til stofnunar hverfisráðs Stokkseyrar þriðjudaginn 7. apríl, kl. 19:30 í Barnaskólanum á Stokkseyri.

  • Barnaskólinn á Stokkseyri

Sveitarfélagið Árborg boðar til funda í hverfisráðum sveitarfélagsins í samræmi við nýjar samþykktir fyrir hverfisráð, samþykktar á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 4. febrúar 2026. Á fundunum verður farið yfir hlutverk og starfshætti hverfisráða og kosið í stjórn hvers ráðs.

Hlutverk hverfisráða er að stuðla að virku samráði sveitarfélagsins og íbúa, efla íbúalýðræði og fjalla um málefni er varða hvert hverfi sérstaklega.

Bæjarstjórn Árborgar bindur vonir við gott og farsælt samstarf við ný hverfisráð og til að stuðla að því verður tveimur bæjarfulltrúum falið að starfa með hverju ráði samkvæmt samþykktum

Kjör til stjórna hverfisráða

Íbúar hvers svæðis eru hvattir til að gefa kost á sér til setu í stjórn viðkomandi hverfisráðs. Hægt er að bjóða sig fram:

  • á fundinum sjálfum, eða

  • fyrir fundinn, með því að senda tölvupóst með upplýsingum um sig á:
    arborg@arborg.is merkt „Framboð í Hverfisráð“

Nánari upplýsingar

Samþykktir fyrir hverfisráð Árborgar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins:

www.arborg.is/samthykktir


Viðburðadagatal

6.8.2026 - 14.9.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Sýningar á verkum Jóns Magna Ólafssonar í Listagjá og Sundhöll Selfoss

Sýningarnar verða formlega opnaðar fimmtudaginn 6. ágúst og standa til 14. september.

Sjá nánar
 

6.8.2026 - 14.9.2026 Sundhöll Selfoss Sýningar á verkum Jóns Magna Ólafssonar í Listagjá og Sundhöll Selfoss

Sýningarnar verða formlega opnaðar fimmtudaginn 6. ágúst og standa til 14. september.  

Sjá nánar
 
8702529f-e1b4-493f-85b5-860f6338f9a3

5.9.2026 BrimRót Furður og fantasíur. Endalok heimsins

Viðburðurinn er hluti af Haustgildi - menning er matarkista 05. - 06.09. á Stokkseyri

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica