Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Sumarlestur Bókasafns Árborgar

  • 23.6.2020, Austurvegi 2

Sumarlestur hefur verið haldinn í júní á hverju ári, frá árinu 1993 og er ókeypis lestrarhvetjandi námskeið fyrir krakka í 2.- 5. bekk.

  • Sumarlesturnr02

Sumarlestur hefur verið haldinn í lok hvers skólaárs frá árinu 1993 í Bókasafni Árborgar. Sumarlestur er ókeypis lestrarhvetjandi námskeið fyrir krakka í 2.– 5. bekk, þau mega vera yngri eða eldri en viðmiðunin er að þau séu orðin stautfær í lestri.

Á hverju ári fær bókasafnið á Selfossi til sín höfunda barnabóka eða annað fólk með skemmtilega fyrirlestra fyrir börnin. Tveir hópar hafa verið í sumarlestri og hittast þeir einu sinni í viku þar sem börnin fá ýmst fræðslu eða skemmtun. Í hverri viku er dregið úr happdrætti þar sem börnin fá skemmtilega vinninga.

Sumarlesturinn endar með miklu fjöri í ratleik þar sem krakkarnir leita að vísbendingum og leysa þrautir.

Markmið sumarlestrar er að viðhalda lestrarhæfni og örva lestur bóka.

Í sumar er þemað EGYPTALAND

Nánar um sumarlestur á vefsíðu Bókasafns Árborgar, www.bokasafn.arborg.is

Myndirnar eru frá sumarlestri 2019, þar sem þemað var Risaeðlur.

  • Sumarlesturnr01
  • Sumarlesturnr02
  • Sumarlesturnr03

Viðburðadagatal

30.10.2026 - 15.11.2026 Rauða húsið Kvennaráð eftir Sellu Páls | Leikfélag Eyrarbakka

Leikfélag Eyrarbakka mun frumsýna leikritið Kvennaráð eftir Sellu Páls í Rauða Húsinu á Eyrarbakka þann 30. október og sýningar standa fram í miðjan nóvember.

Sjá nánar
 

30.10.2026 - 30.11.2026 Litla Leikhúsið Leikfélag Selfoss frumsýnir Grandaveg 7

Leikfélag Selfoss frumsýnir leikverkið Grandaveg 7 föstudaginn 30. október. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur og leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur.

Sjá nánar
 

3.11.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Komdu að tala íslensku

 Komdu að tala íslensku hefst aftur þriðjudaginn 8. september! / Komdu að tala íslensku is restarting on Tuesday September 8! Everybody welcome!

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica