Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Sumarnámskeið í myndlist: Persónusköpun

  • 15.6.2026 - 19.6.2026, Tónsmiðja Suðurlands

Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: Myndlist; Persónusköpun
Kennari: Sindri Mjölnir
15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00

Námskeiðið er kennt samhliða Dungeon Master námskeiðinu. Fyrsta daginn fá nemendur kynningu á DnD og hvernig persónur eru í boði fyrir leikmenn. Farið verður yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga við sköpun á útliti persóna, bæði stakar og í hóp. Nemendur fá síðan útdeilt persónum sem DM námskeiðið skapar og spreyta sig á að hanna útlit þeirra. Námskeiðið hentar þeim sem hafa ágætis vald á teikningum, en það er ekki sérstök krafa.

Sindri (www.myndskreytir.is) er reyndur myndlistarmaður og hefur hann myndskreytt barnabækur eins og “Skotti og sáttmálinn” en einnig unnið sérstaklega við persónusköpun. Þá hannaði hann lukkudýr (e. mascot) Dýraríkisins og teiknaði allar myndirnar af þeim en þær má finna í lógóinu sjálfu og á heimasíðu verslunarinnar.

Námskeiðið er haldið í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67 á Selfossi, fyrir 4 - 12 nemendur á táningsaldri.

Verð: 23.900 kr

Skráningarvefur: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/courselist/7


Viðburðadagatal

19.9.2026 - 10.10.2026 Listagjáin Skapandi HP-ingar sýna verk sín í Listagjánni

Nú stendur yfir sýningin SKAPANDI HP-INGAR í Listagjánni, sýningarsal Bókasafns Árborgar á Selfossi. Þar gefst gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttum handgerðum munum og ljósmyndum sem starfsfólk Kökugerðar HP skapar í frítíma sínum.

Sjá nánar
 

1.10.2026 - 31.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sautjánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Sjá nánar
 

5.10.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Kynning á myndasetur.is | Héraðsskjalasafn Árnesinga

Sýnikennsla á bókasafni Árborgar Selfossi mánudaginn 5. október kl. 15 - kl. 16 og kl. 17.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica