Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Sumarnámskeið í myndlist: Tölvuteikningar

  • 15.6.2026 - 19.6.2026, Tónsmiðja Suðurlands

 Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: Myndlist; Tölvuteikningar (e. digital art)
Kennari: Sindri Mjölnir
15. 16. 18. og 19. júní — kl 18:00 - 21:00

Á námskeiðinu læra nemendur öll helstu skrefin við að teikna með teikniforriti. Að námskeiði loknu ætti nemandinn að hafa lokið við eina fullkláraða mynd án bakgrunns. Námskeiðsdagar skipta skrefunum:
Skissa; form og flæði
Útlínur; tækni og penslar (brushes)
Flatir litir; value og þema
Ljós og skuggi; lögmál og stillingar.

KRÖFUR: Nemendur þurfa eigin tölvu+teikniborð (eða spjaldtölvu+penna) og aðgang að teikniforriti (Adobe Photoshop æskilegast)

Sindri (www.myndskreytir.is) er reyndur myndlistarmaður og hefur hann myndskreytt barnabækur eins og “Skotti og sáttmálinn” en einnig unnið sérstaklega við persónusköpun. Þá hannaði hann lukkudýr (e. mascot) Dýraríkisins og teiknaði allar myndirnar af þeim en þær má finna í lógóinu sjálfu og á heimasíðu verslunarinnar.

Námskeiðið er haldið í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67 á Selfossi, fyrir 4 - 12 nemendur á táningsaldri.

Verð: 29.900 kr
Skráningarvefur: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/courselist/7


Viðburðadagatal

7.6.2026 Stokkseyri Sjómannadagurinn á Stokkseyri 2026

Sjómannadagsmessa, Sjómannadagskaffi í umsjá Kvenfélags Stokkseyrar og fjölbreytt dagskrá við höfnina í samstarfi við Björgunarfélag Árborgar.

Sjá nánar
 

8.6.2026 Sandvíkursetur Ungmennakvöld 18-30 ára hjá MFÁ

Ungmennakvöld MFÁ eru á mánudögum þar sem listakonan Natasja Buus leiðir kvöldin. 

Sjá nánar
 

13.6.2026 - 21.6.2026 Eyrarbakki Opnunarhátíð Alþjóðlegu listahátíðarinnar Oceanus Stórsjór 2026 á Eyrarbakka

Afrakstur vinnu listamannanna sýndur, eftir mánaðardvöl á Eyrarbakka / 
The artists' work is on display, after a month-long stay in Eyrarbakki

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica