Útgáfuhóf | Heimir hugrakki & lífið í leikskólanum

  • 16.11.2026, Bókasafn Árborgar, Selfoss

Útgáfuhóf á Bókasafni Árborgar Selfossi mánudaginn 16. nóvember kl. 16:30

  • Frettatilkynningar20x30-5-

Nýjasta barnabók Sigríðar Etnu Marinósdóttur er komin út, Heimir hugrakki & lífið í leikskólanum. Freydís Kristjánsdóttir myndskreytir bókina.

Í tilefni þess bíður Sigríður í útgáfuhóf mánudaginn 16. nóvember. Þar mun hún lesa úr bókinni og hægt verður að kaupa hana á sérstöku útgáfuhófstilboði.

Heimir hugrakki & lífið í leikskólanum er fimmta barnabókin hennar. En það eru 5 ár síðan síðasta bók kom út og gleðin því mikil núna.

Bókin fjallar um músina Heimi sem læðist inn í leikskólann Álfheima, hér á Selfossi. Þar er líf og fjör og nóg um að vera. Það verður uppi fótur og fit þegar uppgötvast að það sé komin mús inn í skólann. Hefst þá leitin að Heimi.

885667344_10175515145885134_1303611653927619451_n


Viðburðadagatal

30.10.2026 - 15.11.2026 Rauða húsið Kvennaráð eftir Sellu Páls | Leikfélag Eyrarbakka

Leikfélag Eyrarbakka mun frumsýna leikritið Kvennaráð eftir Sellu Páls í Rauða Húsinu á Eyrarbakka þann 30. október og sýningar standa fram í miðjan nóvember.

Sjá nánar
 

30.10.2026 - 30.11.2026 Litla Leikhúsið Leikfélag Selfoss frumsýnir Grandaveg 7

Leikfélag Selfoss frumsýnir leikverkið Grandaveg 7 föstudaginn 30. október. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur og leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur.

Sjá nánar
 
9707fedf-2353-404d-85e2-c035334b420f

9.11.2026 - 13.11.2026 Sveitarfélagið Árborg Deildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga

Dagana 9. - 13. nóv halda söngdeild, blásaradeild, gítardeild, píanódeild, strengjadeild, blokkflautudeild og rytmísk deild tónlistarskólans sína deildartónleika.  

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica