Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026

Laugardaginn 29. ágúst

Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Vetrartónar Stokkseyrarkirkju 2026

  • 11.2.2026 - 4.3.2026, Stokkseyrarkirkja

Tónleikaröðin Vetrartónar í Stokkseyrarkirkju sem hóf göngu sína í fyrra snýr aftur með glæsilega dagskrá. Að þessu sinni verða tónleikarnir fernir og fara fram fjögur miðvikudagskvöld í röð.

Tónleikaröðin er liður í starfi Stokkseyrarkirkju að bjóða fólk velkomið til kirkju og njóta vandaðs tónlistarflutnings á dimmasta tíma ársins. Allir tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og er aðgangur ókeypis, en gestum gefst kostur á að leggja til frjáls framlög. Tónleikaröðin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurlands.

Dagskrá Vetrartóna 2026

· 11. febrúar – Óperur og óratoríur: Stórsöngkonan Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó-sópran og Tómas Eggert Guðnason píanó- og orgelleikari flytja söngdagskrá helguð þekktum óratoríu- og óperuaríum.

· 18. febrúar – Íslensk og þýsk sönglög: Sunnlenski barítóninn Gunnlaugur Bjarnason og Sævar Helgi Jóhannsson píanóleikari flytja sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns, Jón Þórarinsson, L.v. Beethoven, Pál Ísólfsson o.fl.

· 25. febrúar – Skálholtsbiskup og Sturlungar: Hinn margrómaði miðaldatónlistarhópur Voces Thules, sem starfað hefur frá árinu 1991, flytur brot úr tíðarsöng Þorláks helga og söngva um draumfarir Sturlunga við eigin hljóðfæraundirleik þar sem leikið verður á langspil, symfón, gíttern, flautur, sekkjapípur, trommur og slagverk af ýmsum gerðum.

· 4. mars – Þjóðlög, dægurlög og kvæðaskapur: Hin ástsæla söngkona Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson gítarleikari flytja vel valin þjóðlög og dægurlög innan um nýjan og fornan kvæðaskap.

VETRARTONAR-2026


Viðburðadagatal

6.8.2026 - 14.9.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Sýningar á verkum Jóns Magna Ólafssonar í Listagjá og Sundhöll Selfoss

Sýningarnar verða formlega opnaðar fimmtudaginn 6. ágúst og standa til 14. september.

Sjá nánar
 

6.8.2026 - 14.9.2026 Sundhöll Selfoss Sýningar á verkum Jóns Magna Ólafssonar í Listagjá og Sundhöll Selfoss

Sýningarnar verða formlega opnaðar fimmtudaginn 6. ágúst og standa til 14. september.  

Sjá nánar
 
Frettatilkynningar20x30-5-

27.8.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Ástin og Ísfólkið

Fimmtudaginn 27.ágúst kl. 19:30. Rómantískur ágústmánuður er nú runninn upp og við fáum einstaklega skemmtilega fyrirlesara til að fjalla um ástina og Ísfólkið. Katrín Jakobsdóttir, okkar eina sanna, fjallar um ástarsögur og Brynhildur Björnsdóttir fjallar um bókaflokkinn "Ísfólkið" eftir Margit Sandemo.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica