16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Í dag hefst alþjóðlegt átak gegn kynbundnu ofbeldi. Sveitarfélagið Árborg mun í tilefni átaksins lýsa ráðhúsið með appelsínugulum ljósum. Einnig munu fánar átaksins blakta víða um sveitarfélagið.
Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991 og hafa fjölda margir aðilar á Íslandi tekið þátt. Litur átaks Soroptimista er appelsínugulur.
Tímasetning átaksins er engin tilviljun, en það hefst í dag 25. nóvember á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gagnvart konum og lýkur 10. desember á hinum alþjóðlega mannréttindadegi. Markmið átaksins er að vekja athygli á og knýja á um afnám alls kyndbundins ofbeldis.
Hin alþjóðlega hreyfing Soroptimista, sem Soroptimistaklúbbur Suðurlands er hluti af, tekur fullan þátt í þessu átaki og í ár er átakið helgað stafrænu ofbeldi.
Í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi munu SIGURHÆÐIR kynna starfsemi sína fimmtudaginn 25. nóvember nk. kl. 19.30 í Tryggvaskála, Selfossi. Á kynningarfundinum verður m.a. gerð grein fyrir hinni miklu samstöðu og einhug sem ríkir i sunnlensku samfélagi um SIGURHÆÐIR, svo sem hjá sveitarfélögum, lögreglu, sýslumanni og HSu.