Auðlesið um atkvæðagreiðslu
Miðstöð um auðlesið mál og Landskjörstjórn hafa útbúið auðlesnar upplýsingar um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu á vefsíðu sem og á bæklingaformi. Markmið þeirra er að tryggja að allir hafi aðgang að skýrum upplýsingum um lýðræðisleg réttindi sín. Það er mikilvægt að fólk fái tækifæri til að kynna sér kosningarnar á máli sem er aðgengilegt öllum.
Í bæklingnum er fjallað um:
- Hvað kosningarnar snúast um.
- Muninn á ESB og EES.
- Hvað aðildarviðræður eru.
- Hvað gerist ef þjóðin segir já.
- Hvað gerist ef þjóðin segir nei.
- Og margt fleira.
Smelltu hér til þess að skoða bæklinginn.

