„Mér finnst gott að vera ég, af hverju þarf það að vera umdeilt?“
Í september hófst ungmennaskiptaverkefni þar sem áhersla var lögð á að efla hinsegin sjálfsmynd ungmenna og skapa vettvang fyrir þau til að deila reynslu sinni. Í verkefnið voru valin átta ungmenni úr hinsegin félagsmiðstöðinni í Zelsíuz sem fengu tækifæri til að hitta átta ungmenni frá sambærilegri félagsmiðstöð í Eidsvoll í Noregi.

Markmið verkefnisins var að gefa ungmennunum tækifæri til að deila reynslu sinni af því að vera hinsegin á Íslandi og í Noregi, ræða sameiginlegar áskoranir og styrkja hvert annað með samkennd og viðurkenningu. Á sama tíma mynduðust ný vináttubönd í gegnum skemmtileg borðspil og skapandi vinnustofur sem ungmennin sjálf höfðu umsjón með.
Í ungmennaskiptunum var skapað rými þar sem ungmennin gátu tjáð sig opinskátt um reynslu sína af því að vera hinsegin, rætt pólitískt ástand í löndunum tveimur og deilt áhyggjum sínum og ótta. Þau lögðu einnig áherslu á jákvæðar hliðar hinsegin samfélagsins, svo sem baráttu fyrir réttindum hinsegin fólks, gleðigöngur, áhrifamiklar fyrirmyndir og sögu hinsegin fólks í báðum löndum.
Ungmennin veltu einnig fyrir sér mikilvægi örugga rýma sem hinsegin félagsmiðstöðvarnar bjóða upp á.
Í umræðunum komu fram ýmis sjónarmið sem endurspegluðu svipaðar upplifanir:
„Það er gott og mikilvægt að upplifa öryggi og geta tjáð sig frjálslega.“
„Mér finnst fjölbreytileikinn skemmtilegur og hér geta allir rætt saman á jafningjagrundvelli.“
„Við ættum ekki að þurfa á svona stað að halda, en ég er þakklát/ur fyrir samfélagið og vinina sem ég hef eignast.“
„Það gleður mig alltaf að vita að svona staður sé til.“
„Mér finnst gott að vera ég sjálf/ur, en af hverju þarf það að vera umdeilt?“
„Hér er mér tekið eins og ég er, ekki bara út frá því hverjum ég laðast að.“
Sköpun, sjálfstjáning og nýjar hliðar sjálfsmyndarinnar
Megináhersla verkefnisins var á skapandi sjálfstjáningu og að gefa þátttakendum tækifæri til að kanna og tjá hinsegin sjálfsmynd sína. Það var meðal annars gert með því að skapa persónur fyrir hlutverkaleik. Ungmennin fengu tækifæri til að prófa ný nöfn, mismunandi kyntjáningu og móta nýja sjálfsmynd í gegnum persónurnar sínar.
Í einni vinnustofunni bjuggu þátttakendur til hluti sem áttu að tákna persónurnar þeirra og hjálpa til við að gera hugmyndirnar að veruleika. Sumir bjuggu til skartgripi, aðrir fatnað og enn aðrir fantasíueyru eða horn.
Einnig var tími til að velta fyrir sér persónuleika, sögu og hegðun persónanna, hvernig þær myndu eiga samskipti við umheiminn og hvernig þær vildu að aðrir sæju þær. Allar þessar hugmyndir voru skráðar í minnisbækur sem ungmennin höfðu sjálf skreytt í annarri skapandi vinnustofu.
Smám saman urðu persónurnar eins konar framlenging á þátttakendunum sjálfum og ungmennin fóru að sjá hluta af sjálfum sér í persónunum sem þau höfðu skapað.
Á síðasta degi verkefnisins var ungmennunum, nú í hlutverkum persónanna sinna, boðið inn í ævintýraheim sem tveir þátttakendur höfðu skapað og starfsfólkið síðan hjálpað til við að þróa áfram.
Síðast deginum var eytt í að spila hlutverkaleikinn Dungeons & Dragons, þar sem persónurnar komu til þorps sem var undir stjórn grimmilegs dreka. Með samkennd og skilningi, eiginleikum sem þátttakendur höfðu æft sig í alla vikuna, tókst þeim þó fljótt að leysa ágreininginn.
Þegar persónurnar komust að því að drekinn var í raun aðeins einmana og þráði að eignast vini ákváðu þau að halda veislu fyrir þennan misskilda dreka.
Leikstjórnendur höfðu gert ráð fyrir þessum möguleika og hvöttu ungmennin til að láta hugmyndina verða að veruleika. Þau tóku því til við að skreyta og undirbúa rýmið fyrir komu drekans.
Með köku og í búningum héldum þau upp á afmæli drekans, en um leið fögnuðum við lokum yndislegrar viku sem einkenndist af gleði, samveru og nýjum vináttuböndum.
Vinátta, valdefling og framhald verkefnisins
Það er óhætt að segja að þátttakendurnir hafi skemmt sér vel og notið þess að koma saman, kynnast hvert öðru og tengjast í gegnum sameiginlega reynslu af því að vera hinsegin.
Markmiðið er að vinna gegn hatri og mismunun með hugrekki, samstöðu
og stuðningi. Slík reynsla getur haft mikil og jákvæð áhrif á sjálfstraust ungmennanna og styrkt þau í að vera þau sjálf.
Við hlökkum mikið til að halda verkefninu áfram í apríl 2027 þegar við tökum á móti norsku vinum okkar í Árborg. Þar munum við halda áfram að vinna með sjálfstjáningu og sköpun í fjölbreyttum vinnustofum og efla enn frekar þau tengsl sem mynduðust í þessari fyrstu heimsókn.


