Fjárhagsaðstoð í Árborg
Bæjarstjórn hefur samþykkt samhljóða tillögu bæjarráðs að heildarendurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Árborg.
Félagsmálanefnd samþykkti tillöguna 30. mars sl. og vísaði henni til bæjarráðs sem samþykkti tillöguna samhljóða þann 8. apríl sl..
Endurskoðunin miðar að því að reglur um fjárhagsaðstoð í Árborg þjóni betur hagsmunum umsækjenda og aukin áhersla verði lögð á virkniþátttöku og endurhæfingu viðtakenda fjárhagsaðstoðar. Einnig er horft til aukins stuðnings við barnafjölskyldur og þroskavænlegt félagsstarf barna þeirra einstaklinga sem þiggja fjárhagsaðstoð en þessar breytingar eru í takti við áherslur fjölskyldusviðs á snemmtæka íhlutun og forvarnarstarf.
Reglurnar taka gildi frá og með 1. maí 2021.
Reglur og nánari upplýsingar um fjárhagsaðstoð í Sveitarfélaginu Árborg