Fjölmenningarhátíð Árborgar og Kvikmyndahátíð barnanna um helgina
Fyrsta fjölmenningarhátíð Árborgar verður haldin næstkomandi laugardag, 10. október, í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu). Hátíðin hefst klukkan 14:00 og stendur til klukkan 17:00. Kvikmyndahátíð barnanna fer fram 10.-11. október og verður í Bíóhúsinu Selfossi.
Á fjölmenningarhátíð munu fimmtán þátttökuþjóðir kynna menningu sína við sérstaka kynningarbása. Gestir geta fræðst um ólík lönd, smakkað hefðbundna rétti frá ýmsum heimshornum og kynnst ríkum menningararfi þeirra sem búa í sveitarfélaginu.
Boðið verður upp á dagskrá þar sem fjölbreytileikanum er fagnað með tónlist, dansi og matarsmakki.
Viðburðurinn er frábært tækifæri fyrir öll þau sem vilja læra um nýja menningu, smakka framandi mat eða einfaldlega njóta góðs félagsskapar í skemmtilegu og fræðandi andrúmslofti.
Kvikmyndahátíð barnanna verður einnig haldin í fyrsta sinn um helgina og fara sýningar fram í Bíóhúsinu Selfossi 10.-11.október. Þar verða sýndar 24 stuttmyndir frá öllum heimshornum.
Það eru krakkar í Árborg sem sjá um undirbúning en hátíðin gefur yngstu kynslóðinni tækifæri til að skyggnast inn í ólíka menningarheima og upplifa töfra kvikmyndalistarinnar í heimabyggð, sér að kostnaðarlausu.
Dagskrá kvikmyndahátíðar er hér: Kids for Films / Kvikmyndahátíð barnanna
Fjölmenningarhátíð og Kvikmyndahátíð barnanna eru báðar hluti af dagskrá Menningarmánaðarins október í Árborg.
Dagskrá menningarmánaðar má finna hér: Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026 | Viðburðadagatal | Sveitarfélagið Árborg
Aðgangur er ókeypis á viðburði helgarinnar, styðjum menningu með því að mæta!



