Framkvæmdir við miðeyju á Austurvegi
Vegagerðin leitaði eftir samstarfi við Svf. Árborg um úrbætur á umferðaröryggi á Austurvegi frá Tryggvatorgi að Sigtúni.
Mikill umferðarþungi er á svæðinu frá Tryggvatorgi að Sigtúni og á að setja upp girðingu í miðeyjuna til að beina gangandi fólki að gangbrautinni til að tryggja öryggi þess.
Aðgerðin felur í sér að núverandi aspir og lággróður er fjarlægður. Eyjan verður steypt og sett upp girðing frá Tryggvatorgi að Sigtúni. Sett verða ný reynitré í staðinn fyrir aspirnar og einnig verða settir blómakassar á girðinguna með svipuðum hætti og er við Tryggvatorg í dag.
Verktaki á vegum Vegagerðarinnar sér um verkið og hefjast framkvæmdir í næstu viku.
Verkefnið var kynnt á fundi umhverfisnefndar Árborgar þann 5. mars sl. og kynnt á vefsíðu Árborgar í framhaldi. Sjá frétt um "Aukið umferðaöryggi við Austurveg".