Fréttir af leikskólamálum í Árborg
Innritun í leikskóla Árborgar er lokið fyrir skólaárið 23-24 og nýtt þróunarverkefni sem er samstarfsverkefni allra leikskóla í sveitarfélaginu, fjölskyldusviðs og Háskóla Íslands.
Innritun í leikskóla Árborgar fyrir skólaárið 2023-2024 er lokið
Við innritun er unnið eftir reglum um leikskóla Árborgar þar sem aldur barns ræður röð á biðlista. Innritun fer að jafnaði fram í mars og apríl og er tekið mið af þeim umsóknum sem borist hafa fyrir þann tíma. Það er ánægjulegt að segja frá því að öll börn sem áttu umsókn á innritunartíma og eru fædd í maí 2022 og fyrr hafa fengið boð um leikskólapláss.
Í dag er staðan sú að rétt rúmlega 70 börn eru á biðlista eftir leikskólaplássi en þau eru á aldrinum 1. til 18. mánaða. Þess ber að geta að þær vistunarumsóknir sem berast eftir að innritun lýkur fara óhjákvæmilega á biðlista. Því getur aldur barna á biðlista verið breytilegur.
Vakinn er athygli á að það er sveigjanlegur vistunartími í leikskólum Árbogar. Sveigjanleikinn getur verið hluta úr degi eða fleiri dagar í viku en alltaf fastir dagar sem eru fyrirfram ákveðnir. Þó getur vistun aldrei verið styttri en fjórir tímar á dag. Hægt er að sækja um í gegnum mínar síður á arborg.is.
Sigríður Birna Birgisdóttir, leikskólastjóri Goðheimum og Anna Gína Aagestad, aðstoðarleikskólastjóri Goðheimum taka, fyrir hönd Sveitarfélags Árborgar, á móti styrk frá sprotasjóði. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra og Þorsteinn Hjartarson, skrifstofustjóri mennta- og barnamálaráðuneytis afhentu styrkinn.
Þróunarverkefni í leikskólum Árborgar
Á næsta skólaári fer af stað þróunarverkefni sem er samstarfsverkefni allra leikskólanna í Árborg, fjölskyldusviðs sveitarfélagsins og Háskóla Íslands sem ber nafnið: Að styðja við farsæld barna í leikskóla með því efla félags- og tilfinningafærni þeirra í daglegu starfi í nánu samstarfi við foreldra.
Verkefnið er unnið í anda markmiða laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og er ætlað að stuðla að farsæld barna með því efla félags- og tilfinningafærni þeirra í nánu samstarfi við foreldra. Þróaðar verða leiðir til að efla félags- og tilfinningahæfni barna í leik og hlúa að vináttu þeirra og samskiptum með það fyrir augum að öll börn tilheyri í leikskólanum. Lögð verður áhersla á að hlusta á sjónarmið barna og virkja áhrifamátt þeirra og þátttöku í daglegu starfi í leikskólanum. Jafnframt verður rík áhersla lögð á gott samstarf leikskólakennara og foreldra í verkefninu.
Eins má geta þess að sveitarfélagið hefur fengið styrk frá þróunarsjóði innflytjenda vegna verkefnisins Eflum tengsl heimila og leikskóla. Verkefnið er hugsað sem námskeið fyrir foreldra leikskólabarna af erlendum uppruna og á að stuðla að virkri notkun íslensku í gegnum félagslega viðburði og styðja við hefðbundið íslenskunám. Þetta verkefni er beint framhald af sambærilegu verkefni sem hefur verið í gangi í grunnskólum Árborgar og gefið góða raun.
Það er mikið og gott faglegt starf unnið í leikskólum Árborgar og munu þessi verkefni efla það góða starf enn frekar.