Frístundaheimili 3.- 4. bekkinga | breytingar
Næsta skólaár verða þær breytingar á starfsemi frístundaheimila að öll starfsemi 3. - 4. bekkjar verður í húsnæði við Tryggvagötu 23a sem í daglegu tali kallast Valhöll og er á lóð Vallaskóla.
Í Valhöll verður svokölluð safnfrístund þar sem börn í 3.- 4. bekk úr Sunnulækjaskóla, Stekkjarskóla og Vallaskóla munu koma saman í skipulagt og uppbyggilegt starf skólaárið 2023 - 2024.
Í vikunni munu börnin sem koma til með að fara í safnfrístund taka þátt í nafnakosningu á tilvonandi frístundaheimili.
Við komum til með að leggja mikla áherslu á barnalýðræði og byggja starfsemina að miklu leyti upp á áhugasviði barnanna í sambland við hefðbundna starfsemi frístundaheimila.
Staðsetningin er afar hentug, miðsvæðis og er þægileg varðandi aðrar tómstundir sem eru margar í næsta nágrenni.
Búið er að opna fyrir skráningu og fer hún fram á vef Völu.
Ef einhverjar spurningar vakna hafið endilega samband við forstöðumenn frístundaheimilanna.