Heilsuefling 60+ | Eyrarbakki
Heilsuræktarnámskeið fyrir íbúa 60 ára og eldri í Árborg þar sem áhersla er lögð á styrktarþjálfun ásamt því að þjálfa þol, jafnvægi og lipurð.
Æfingarnar fara fram í Íþróttahúsinu Stað á Eyrabakka alla þriðjudaga frá klukkan 14:00 - 15:00
Námskeiðstímabil er 12.okt - 21.des 2021
Berglind Elíasdóttir M.Ed. íþrótta- og heilsufræðingur með sérstaka áherslu á þjálfun eldri aldurshópa kennir námskeiðið.
Skráning er óþörf, námskeiðið er íbúum að kostnaðarlausu og allir velkomnir.
Allir velkomnir að koma og prófa eða bætast í hópinn eftir að námskeið er hafið.
Athugið að það er hópur á facebook, heilsuefling 60+ Árborg, endilega bætið ykkur í hópinn.