Innritun í grunnskóla skólaárið 2021−2022
Innritun barna sem eru fædd árið 2015 og eiga að hefja skólagöngu haustið 2021 fer fram rafrænt á Mín Árborg til 25. febrúar.
Einnig er hægt að skrá börn í frístundaheimili og í mötuneyti á Mín Árborg. Upplýsingar um skólahverfi hvers skóla er að finna undir grunnskólar á vefsíðu sveitarfélagsins.
Upplýsingar um innritun er hægt að fá í grunnskólunum og hjá þjónustuveri Árborgar í síma 480 1900.
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Stekkjaskóli
Sunnulækjarskóli
Vallaskóli