Nýr leikskólavefur Jötunheima
Vinna við nýtt útlit og högun á leikskólavefum sveitarfélagsins hefur verið í vinnslu og er vefur Jötunheima fyrstur í loftið. Við óskum starfsfólki, foreldrum, forráðamönnum og öðrum notendum vefsins til hamingju með nýjan vef og vonum að hann þjóni notendum sínum vel.
Við hvetjum ykkur til að heimsækja vefinn og koma ábendingum til starfsfólks leikskólans varðandi efni hans.