Líf og fjör í frístundastarfi Árborgar
Það hefur verið líf og fjör í frístundastarfinu í Árborg undanfarið. Þema septembermánaðar var útivera og var lögð áhersla á að njóta nærumhverfisins og bera virðingu fyrir náttúrunni.
Útivera og umhverfisvitund í forgrunni
Í tengslum við þemað fóru börnin meðal annars út að tína rusl í nágrenninu og tóku þátt í fjölbreyttum útileikjum. Þar má nefna útibingó, leynilögreglu, fótbolta og ýmis önnur verkefni sem hvöttu til hreyfingar, samveru og útiveru.
Undirbúningur fyrir fjölmenningarhátíð
Fram undan er fjölmenningarhátíð í Árborg og eru frístundaheimilin að undirbúa þátttöku sína. Börnin ætla að taka upp stutt myndband þar sem þau heilsa hvert á sínu tungumáli og verður myndbandið sýnt í FSu í tengslum við hátíðina.
Með verkefninu gefst tækifæri til að fagna fjölbreytileikanum í barnahópnum og þeim fjölmörgu tungumálum sem þar er að finna.
Starfsdagur frístundaheimilanna
Þann 2. október var haldinn starfsdagur í frístundaheimilunum. Þar fékk starfsfólk meðal annars þjálfun í skyndihjálp, fræðslu um agastjórnun og nýliðafræðslu.
Starfsdagurinn er liður í að efla þekkingu og færni starfsfólks og styðja við áframhaldandi öflugt starf í frístundaheimilum Árborgar.



