Listsköpunarmánuður hjá frístundaheimilum Árborgar
Marsmánuður var helgaður listsköpun hjá frístundaheimilunum. Í tilefni af því var unnið markvisst að fjölbreyttri listsköpun og börnin fengu að njóta sín í skapandi verkefnum.

Pappír þakti veggi og gólf og fengu börnin að teikna og lita að vild. Úr varð sameiginlegt og litríkt listaverk sem endurspeglaði sköpunargleði og þátttöku barnanna.
Einnig var unnið með tilraunakennda málun þar sem blað var brotið saman eftir að málning hafði verið sett á annan helming þess.
Úr urðu falleg og óvænt mynstur sem vöktu mikla ánægju.
Í apríl munu frístundaheimilin beina sjónum að barnamenningu.
Barnamenningardagar Suðurlands fara fram dagana 22.-26. apríl með fjölbreyttri dagskrá fyrir börn og fjölskyldur. Sjá nánar um dagskrá barnamenningardaga hér.

