Ljósleiðarinn er tengdur á Stokkseyri
Nú hefur Ljósleiðarinn tengt öll heimili og fyrirtæki á Stokkseyri og efla þannig fjarskipti á svæðinu enn frekar.
Ljósleiðarinn heldur áfram því metnaðarfulla verkefni að koma sem flestum landsmönnum í besta mögulega samband
Með þéttu neti ljósleiðaraþráða tryggir Ljósleiðarinn íbúum á Stokkseyri hraðan, öruggan og hnökralausan aðgang að tækifærum framtíðarinnar.
Ísland er leiðandi í nýtingu ljósleiðara í Evrópu en yfir 100.000 íslensk heimili geta nú nýtt sér þjónustuna frá Ljósleiðaranum.
Af hverju Ljósleiðarinn?
Nú geta öll heimili og fyrirtæki á Stokkseyri aukið hraðann hjá sér þegar efni er streymt með því að gera það með hinu öfluga þúsund þráða ljósleiðaraneti Ljósleiðarans. Þannig er auðveldara að streyma hágæðaefni í mikinn fjölda tækja á sama tíma.
Fyrir utan aukinn hraða á hinu hefðbundna netvafri þá eykur ljósleiðarinn gæði fjarfunda og myndsímtala umtalsvert. Hraði og snerpa í netleikjum verður enn betri en í fjölspilunarleikjum getur hraðinn oft á tíðum skipt sköpum. Ljósleiðarinn telur mikilvægt að iðkendur rafíþrótta sitji við sama borð þegar kemur að hraða og hefur á undanförnum árum stutt dyggilega við rafíþróttahreyfinguna sem fer sífellt stækkandi.
„Þetta er spennandi verkefni og löngu kominn tími á að íbúar á svæðinu geti kynnst háhraða þegar kemur að nettengingum,“ segir Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Ljósleiðarans. Hann hvetur íbúa á Eyrarbakka jafnframt til að fylgjast með þegar tengingu verður komið á við íbúa á Eyrarbakka á næstu vikum. „Og svo er bara að setja sig í samband við sitt fjarskiptafélag og panta hágæðanettengingu frá Ljósleiðaranum.“
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarstjóri Árborgar fagnar lagningu Ljósleiðarans. „Sveitarfélagið Árborg fagnar mjög þessu framfaraskrefi sem mun sannarlega stuðla að auknum lífsgæðum íbúa okkar og auka samkeppnishæfni svæðisins t.d. þegar kemur að störfum án staðsetningar og fleiru. Ljósleiðari er krafa nútímasamfélags og því mikilvægt að koma Stokkseyri í hágæðasamband.”