Menningarviðurkenning Árborgar 2026
Sveitarfélagið Árborg veitir Menningarviðurkenningu Árborgar fimmtudaginn 29. október kl. 14:30 í Grænumörk, Selfossi.
Viðurkenningin er veitt vegna framúrskarandi starfa í þágu menningarlífs í Árborg.
Viðburðurinn er hluti af dagskrá Menningarmánaðarins október. Hörpukórinn undir stjórn Stefáns Þorleifssonar syngur við athöfnina.
Í kjölfar viðurkenningarinnar verður viðburður á vegum Félags eldri borgara á Selfossi sem tekur virkan þátt í menningarmánuði í ár sem áður. Kjartan Björnsson, formaður menningarnefndar, mun veita viðurkenninguna fyrir hönd sveitarfélagsins.


