Íþrótta- og frístundastarf hefst að nýju 4. maí
Heilbrigðisráðherra hefur gefið út víðtækari afléttingu fyrir íþrótta- og frístundastarf barna og unglinga á Íslandi frá og með 4.maí nk. Fréttirnar eru mjög jákvæðar og mun íþrótta- og frístundastarfið í Árborg hefjast aftur á þessum tíma.
Íþrótta- og frístundamannvirki í Árborg munu opna fyrir starf íþrótta- og frístundafélaga í takti við viðmið almannavarna þar sem allt starf barna og unglinga á grunnskólaaldri getur farið fram innan- og utandyra án takmarkana líkt og kemur fram í auglýsingu heilbrigðisráðuneytisins en íþrótta- og frístundafélögin í Árborg senda nánari upplýsingar á sína iðkendur á næstu dögum.
Viðmið vegna íþrótta- og frístundastarfs barna og unglinga á grunnskólaaldri:
- Engar fjöldatakmarkanir verða settar á iðkendur.
- Öll íþrótta- og æskulýðsstarfsemi, inni og úti, verði leyfð.
- Skíðasvæði verði opin fyrir æfingar barna og unglinga.
- Sundlaugar, búnings- og sundaðstaða verði opin fyrir sundæfingar barna og unglinga.
- Keppni í íþróttum barna á leik- og grunnskólastigi verði heimil án áhorfenda.
- Hvatt verði til sérstaks hreinlætis og handþvottar.
Íþróttaæfingar eldri en 16 ára fara fram með eftirfarandi takmörkunum:
- Mest verði sjö einstaklingar með þjálfara á útisvæði sem miðast við hálfan fótboltavöll.
- Mest verði fjórir einstaklingar með þjálfara á innisvæði sem miðast við handboltavöll.
- Notkun búningsaðstöðu innanhúss verði óheimil.
- Hvatt verði til að tveggjametra nándarreglan verði virt.
- Keppni í íþróttum fullorðinna verði óheimil nema ef hægt sé að uppfylla skilyrði um tveggja metra nándarreglu og að keppni sé án áhorfenda.
- Sundæfingar fyrir fullorðna verði að hámarki fyrir sjö einstaklinga. Notkun búnings- og sturtuaðstöðu verði leyfð.
- Áfram verði hvatt til sérstaks hreinlætis, handþvottar og notkunar handspritts.
- Sundlaugar verði lokaðar almenningi.
Frístundaakstur hefst á ný samkvæmt áætlun
Hægt er að kynna sér auglýsingu heilbrigðisráðuneytisins betur á vef stjórnarráðs og um íþrótta-og frístundastarfið á vef UMFÍ .