Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036, heildarendurskoðun
Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst tillaga að endurskoðuðu Aðalskipulagi Árborgar 2022 - 2036:
1. Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036, heildarendurskoðun.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 20.10. 2021 að auglýsa tillögu að nýju Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Í aðalskipulaginu er sett fram stefna sveitarstjórnar um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál í sveitarfélaginu á skipulagstímanum.
Við gildistöku nýs aðalskipulags mun gildandi aðalskipulag, ásamt síðari breytingum á því, falla úr gildi.
Með nýrri aðalskipulagstillögu er lögð fram skipulagsgreinargerð, sveitarfélagsuppdráttur, þéttbýlisuppdrættir fyrir Selfoss, Stokkseyri og Eyrarbakka. Jafnframt er lögð fram forsendu- og umhverfismatsskýrsla og skýringaruppdrættir.
Í aðalskipulagstillögunni er áhersla á eftirfarandi megin markmið á skipulagstímabilinu:
- Að skipulag byggðar og umhverfis stuðli að sjálfbærri þróun samfélagsins og skapi skilyrði til sambýlis íbúa og náttúru.
- Að jafnvægi sé milli verndunar umhverfis og náttúru og nýtingar, til heilla fyrir notendur.
- Að skipulagið taki mið af þörfum íbúa og skapi góð búsetuskilyrði fyrir alla.
- Að skipulagið stuðli að hagkvæmum rekstri sveitarfélagsins og miði að jafnvægi og stöðugleika í rekstrinum.
- Að stuðla að heilsueflandi samfélagi innan Árborgar.
- Að stuðla að kolefnisbindingu og að draga úr losun kolefnis.
Skipulagsstofnun samþykkti aðalskipulagstillöguna til auglýsingar með afgreiðslu sinni þann 16.12.2021 með nokkrum athugasemdum. Brugðist hefur verið við athugasemdum í auglýstri tillögu. Afgreiðsla Skipulagsstofnunar fylgir auglýsingu aðalskipulagstillögunnar.
Aðalskipulagstillagan liggur frammi til kynningar á skrifstofu Sveitarfélagsins Árborgar að Austurvegi 2, Selfossi og einnig á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67 Selfossi.
Aðalskipulagstillagan er auglýst frá 16. mars 2022 til og með 27. apríl 2022.
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 27. apríl 2022.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi, eða með tölvupósti á skipulag@arborg.is
Skipulagsgögnin má nálgast hér | Aðalskipulag Árborgar
Hlekkur á vefsjána | https://efla-engineers.maps.arcgis.com/apps/MapSeries/index.html?appid=fa544ada76bc46ebae7cd019892e5c12
Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
Virðingarfyllst,
Anton Kári Halldórsson | skipulagsfulltrúi