Nýjar reglur um styrki til nema í leikskólakennarafræðum
Á fundi bæjarstjórnar, 17. febrúar 2021, voru nýjar reglur um styrki til nema í leikskólakennarafræðum samþykktar.
Reglurnar gilda fyrir starfsfólk í leikskólum sveitarfélagsins sem leggur stund á háskólanám í leikskólakennarafræðum. Markmiðið með reglunum er að fjölga leikskólakennaranemum og efla starfsþróun leikskólakennara í leikskólum Árborgar þannig að 2/3 hlutar starfsfólks séu leikskólakennarar, eins og áskilið er í lögum um leikskóla nr. 90/2008.
Sjá nánar hér.