Nýr frístundavefur Árborgar í undirbúningi
Vinna við nýjan íþrótta- og frístundavef Sveitarfélagsins Árborgar stendur nú yfir en á honum verða upplýsingar um íþrótta- og frístundanámskeið fyrir alla aldurshópa á svæðinu.
Síðan mun leysa af hið svokallaða Sumarblað sem hefur verið gefið út undanfarin ár en það hefur einungis innihaldið upplýsinga um helstu sumarnámskeiðin. Á nýju frístundasíðunni verða upplýsingar um íþrótta- og frístundastarf fyrir alla aldurshópa í samfélaginu ásamt því að benda á fjölbreytta útivistarmöguleika á svæðinu.
Markmiðið með opnun síðunnar er að foreldrar og aðrir íbúar geti á einfaldan hátt kynnt sér hið fjölbreytta framboð á íþróttum, frístundum og útivist á svæðinu ásamt því að fá upplýsingar um skráningu á t.d. sumar og/eða vetrarnámskeið.
Stefnt er að því að síðan fari í loftið um miðjan maí og verður auglýst sérstaklega síðar.