Nýr samningur um úrgangsþjónustu
Nýr samningur um úrgangsþjónustu í Árborg var undirritaður 16.07. síðastliðinn, lægstbjóðendur voru Íslenska Gámafélagið og mun því samstarf halda áfram til næstu tveggja ára með möguleika á tveggja ára framlengingu.
Gámafélagið hefur sinnt úrgangsþjónustu í Árborg í fjölda ára og er sveitarfélagið mjög ánægt með að geta haldið áfram því góða samstarfi. Nýr samningur tekur gildi 1.ágúst næstkomandi og eru helstu breytingarnar þær að grenndarstöðvum verður fjölgað og hefur það verkefni reynst gríðarlega vel og umgengni alveg til fyrirmyndar. Vonast er til að grenndarstöðvar verði komnar upp í haust. Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritun nýs samnings þar sem Atli Marel Vokes sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar og Jón Þórir Frantzson forstjóri ÍGF handsala nýjan samning