Rekstur Sveitarfélagsins Árborgar styrkist áfram með 1.500 milljóna jákvæðri niðurstöðu
Rekstrarafkoma Sveitarfélagsins Árborgar árið 2025 er eins sú besta í fjölda ára. Ábyrg fjármálastjórn, aðgerðir til hagræðingar á undanförnum árum og auknar tekjur sem, m.a. skýrast af íbúafjölgun og framlögum frá Jöfnunarsjóði, eru meginskýring jákvæðrar niðurstöðu ársreiknings sem lagður var fram í bæjarstjórn Árborgar í dag.
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta er jákvæð um 1.497 millj.kr. en áætlanir gerðu ráð fyrir um 67 millj.kr niðurstöðu. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 620 millj.kr. en áætlanir gerðu ráð fyrir um 525 millj.kr neikvæðri niðurstöðu. Um er að ræða eina bestu rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins frá upphafi sem kemur verulega á móti hallarekstri undanfarinna ára. Árangurinn rennir sterkari stoðum undir fjárhagsáætlun ársins 2026 og undirbúning áætlunar næstu ára. Auknar tekjur vegna íbúaþróunar og framlögum frá Jöfnunarsjóði, sem voru umfram áætlanir, hafa umtalsverð áhrif á jákvæða rekstrarniðurstöðu.
Veltufé frá rekstri helst stöðugt milli ára og er um 3.646 millj.kr. og handbært fé eykst um tæplega 1.000 millj.kr. milli ára og endar í 3.287 millj.kr. í A- og B-hluta.
“Niðurstaða ársreikningsins er mjög ánægjuleg og vil ég óska íbúum, starfsmönnum og kjörnum fulltrúum til hamingju með árangurinn. Það er ánægjulegt að erfiðar aðgerðir undanfarin þrjú ár sem hafa verið þungar fyrir okkur íbúa skili árangri á skemmri tíma en áætlað var. Lausafjárstaða sveitarfélagsins styrkist og skuldaviðmið lækkar milli ára þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar og viðhald innviða.
Stefna bæjarstjórnar Árborgar var að taka á rekstrarvandanum með ábyrgum hætti og það er að takast. Við munum áfram sýna ábyrgð í rekstrinum með það að markmiði lækka álögur á íbúa, t.a.m. fasteignagjöld. Íbúar eiga alltaf að njóta ávinningsins af betri rekstri m.a. í formi lægri gjalda og álaga.” sagði Bragi Bjarnason, bæjarstjóri af þessu tilefni.
Skuldaviðmið lækkar í 108,8%
Skuldir við lánastofnanir lækka í heildina milli ára en heildarskuldir og skuldbindingar aukast lítillega vegna hækkunar lífeyrisskuldbindinga. Skuldaviðmið lækkar í 108,8% sem er frábær árangur og er Árborg komið vel undir lögbundið hámark sem er 150% samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
Aðgerðir til hagræðingar og skýr ábyrgð stjórnenda skilar sér í jákvæðri niðurstöðu flestra málaflokka og íbúafjölgun umfram áætlanir ásamt auknum framlögum frá Jöfnunarsjóði eykur tekjur.
Íbúafjöldi í Árborg var 12.671 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands 1.janúar 2026 og fjölgar um 697 íbúa. Fjöldi starfsmanna er um 1.160 í um 860 stöðugildum.
Ársreikningurinn var lagður fram til staðfestingar í bæjarráði miðvikudaginn. 22.apríl og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn miðvikudaginn. 22.apríl.

