Sex mánaða uppgjör Árborgar - Reksturinn stöðugur en veruleg áhrif verðbólgu
Sveitarfélagið Árborg hefur birt árshlutauppgjör samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026. Uppgjörið sýnir sterkan undirliggjandi rekstur og góða tekjuöflun, þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður. Verðbólgan er þar stærsti óvissuþátturinn og hefur veruleg neikvæð áhrif á rekstrarniðurstöðuna.
Rekstrartekjur samstæðunnar námu 10.800 millj.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta var jákvæð um 1.540 millj.kr.
Sjóðstreymi frá rekstri er traust. Veltufé frá rekstri nemur um 1.400 millj.kr og handbært fé samstæðunnar var um 1.560 millj.kr. í lok júní.
Verðbólga og fjármögnunarkostnaður setja mark sitt á reksturinn þar sem verðbólga hefur haldist töluvert hærri á árinu en áætlanir gerðu ráð fyrir. Fjármagnsgjöld samstæðunnar námu 1.160 millj.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins og eru tæplega 300 millj.kr umfram áætlun. Verðbætur og gengismunur voru 922 millj.kr., sem sýnir hversu mikil áhrif verðbólga og verðtryggðar skuldir hafa á afkomu sveitarfélagsins.
Heildarniðurstaða samstæðunnar er því neikvæð um 129 millj.kr. á tímabilinu. Árborg leggur áfram áherslu á ábyrgan rekstur, góða þjónustu við íbúa og forgangsröðun verkefna í ljósi efnahagslegra aðstæðna.
„Reksturinn fyrir fjármagnsliði er jákvæður og sjóðstreymið gott. Á sama tíma sjáum við skýrt hvernig há verðbólga hefur áhrif á afkomuna. Við höldum áfram að vinna markvisst að hagkvæmni og ábyrgri fjármálastjórn í fjárhagsáætlunum næstu ára. Því miður mun bæjarstjórn þurfa að taka erfiðar ákvarðanir við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 enda viljum við alls ekki lenda aftur á þeim stað sem sveitarfélagið var á árið 2022.“ segir Bragi Bjarnason, bæjarstjóri af þessu tilefni.
Uppgjörið nær yfir tímabilið frá 1. janúar til 30. júní 2026. Allar fjárhæðir eru í þúsundum króna í árshlutayfirlitinu.
Árshlutauppgjor Árborg fyrir fyrstu 6 mánuði 2026


