Skákkennsla grunnskólakrakka
Sunnudaginn 17. okt. nk. kl. 11:00 hefst skáknámsskeið fyrir grunnskólabörn í Fischersetri
Námsskeiðið er haldið í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg, Skákskóla Íslands og Skákfélag Selfoss og nágrennis. Helgi Ólafsson, stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands hefur yfirumsjón með kennslunni.
Þetta verða 8 skipti eða einu sinni í viku og þá á sunnudögum frá 11:00 - 12:30 og kostar allt námsskeiðið 4000 kr.
Varðandi frekari upplýsingar þá vinsamlegast hringið í síma 894 1275 eða sendið tölvupóst á netfangið fischersetur@gmail.com
Fischersetrið á Selfossi