Skólasetning skólaárið 2026-2027
Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir mánudaginn 24. ágúst 2026 sem hér segir:
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Skólasetning fer fram sem hér segir:
Kl. 09:00 Nemendur í 1.- 6. bekk, f. 2020-2015 í húsnæði skólans á Stokkseyri.Kl. 11:00 Nemendur í 7. -10. bekk, f. 2014-2011 í húsnæði skólans á Eyrarbakka.
Eftir stutta samkomu á sal munu nemendur hitta umsjónarkennara.
Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2020) verða jafnframt boðaðir til viðtals með umsjónarkennara. Viðtölin fara fram 24. og 25. ágúst.
Fyrsti kennsludagur 1. bekkjar er 26. ágúst.
Stekkjaskóli
Skólasetning fer fram í matsal skólans. Eftir stutta samkomu á sal munu nemendur hitta umsjónarkennara.
Kl. 9:00 Nemendur í 1.-4. bekk, f. 2020-2017.Kl. 10:00 Nemendur í 5.-9. bekk, f. 2016-2012.
Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2020) verða jafnframt boðaðir til viðtals með umsjónarkennurum. Viðtölin fara fram 24. og 25. ágúst.
Fyrsti kennsludagur 1. bekkjar er 26. ágúst.
Sunnulækjarskóli
Skólasetning fer fram í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Eftir stutta samkomu í íþróttahúsi munu nemendur hitta umsjónarkennara.
Kl. 09:00 Nemendur í 1. − 6. bekk, f. 2020-2015.Kl. 10:00 Nemendur í 7. −10. bekk, f. 2014-2011.
Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2020) verða jafnframt boðaðir til viðtals með umsjónarkennara. Viðtölin fara fram 24. og 25. ágúst.
Fyrsti kennsludagur 1. bekkjar er 26. ágúst.
Vallaskóli
Skólasetning fer fram íþróttahúsi Vallaskóla. Eftir stutta samkomu í íþróttahúsinu munu nemendur hitta umsjónarkennara.
Kl. 09:00 1. – 6. bekkur, f. 2020-2015.Kl. 10:00 7. – 10. bekkur, f. 2014-2011.
Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2020) verða jafnframt boðaðir til viðtals með umsjónarkennara. Viðtölin fara fram 24. og 25. ágúst.
Fyrsti kennsludagur 1. bekkjar er 26. ágúst.
Skólaakstur þennan dag verður auglýstur á heimasíðum skólanna.
Skólastjórnendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri, Stekkjaskóla, Sunnulækjarskóla og Vallaskóla.


