Skólastarfið fer vel af stað í Stekkjaskóla
Skólastarfið hefur farið vel af stað í Stekkjaskóla, sem nú er til húsa í frístundarheimilinu Bifröst. Stefnt er að því að skólinn flytji í nýtt húsnæði í október.
Miklar byggingaframkvæmdir hafa verið við Heiðarstekk en þar er verið að ganga frá 10 færanlegum kennslustofueiningum, skólalóð og rúmgóðum gangi á milli þeirra.
Fyrsti áfangi hins nýja skóla verður svo tekinn í notkun haustið 2022. Mikil tilhlökkun er hjá nemendum og starfsfólki gagnvart hinu nýja húsnæði sem verður hið glæsilegasta.
Meðfylgjandi drónamyndir tala sínu máli en þær voru teknar af Rúnari Sveini Valgeirssyni fimmtudaginn 9. september síðastliðinn. Þar sést m.a. hvað framkvæmdum við framtíðarhúsnæði Stekkjaskóla miðar vel áfram. Búið er að steypa upp hluta af 1. hæð skólans þar sem verða kennslurými, list- og verkgreinastofur, frístund, eldhús, matsalur og samkomusalur. Á efri hæðinni verða einnig kennslurými, starfsmannaaðstaða, skrifstofur og fleira.