Sumarlokun í dagdvölinni Árblik
Tekin hefur verið ákvörðun um að loka dagdvölinni Árblik í 4 vikur í sumar en um leið fjölga notendum yfir aðra mánuði ársins.
Ekki verður um að ræða sumarlokun í dagdvölinni Vinaminni sem er sértæk dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun.
Sveitarfélagið Árborg rekur tvær dagdvalir með samningi við Sjúkratryggingar Íslands
Dagdvölin Árblik sem er staðsett í Grænumörk getur tekið við 16 einstaklingum á hverjum degi. Margir notendur nýta þjónustuna aðeins hluta úr vikunni en í heildina nýta um 38 einstaklingar dagdvölina í hverri viku. Með sumarlokun verður hægt að veita fleirum þjónustu aðra mánuði ársins, innan samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
Nú þegar hefur verið hægt að fækka á biðlistum og bjóða allt að 10 einstaklingum þjónustu hjá Árbliki ásamt því að auka þjónustu við aðra notendur. Vonir standa til að hægt sé að bjóða fleirum þjónustu á næstu vikum og með því fækka enn frekar á biðlista eftir þjónustunni.
Á lokunartíma Árbliks yfir sumarið verður notendum tryggð grunnþjónusta, allt úr frá þörfum hvers og eins
Eldri borgarar geta keypt sér heitan mat í þjónustumiðstöðinni í Grænumörk virka daga eða fengið mat heimsendan. Þjónustuþegum Árbliks stendur það til boða líkt og öðrum eldri borgurum í sumar.
Notendur sem þess þarfnast, fá innlit og böðun frá félagslegri stuðningsþjónustu á meðan sumarlokun stendur yfir og því tryggt að þeir notendur fái þá grunnþjónustu sem þeir þurfa á að halda.
Dagdvölinni Vinaminni verður ekki lokað í sumar
Vinaminni er sértæk dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun en sú þjónusta er viðkvæmari fyrir lokun og mótvægisaðgerðum og því verður starfsemi þar líkt og undanfarin sumur.