ÞG-verk sér um fyrsta áfanga Stekkjaskóla
Fyrr í mánuðinum var skrifað undir verksamning við ÞG-verk um byggingu á Stekkjaskóla í Björkurstykki.
Verkið felst í byggingu fyrsta áfanga nýs skóla í Björkurstykki á Selfossi. Byggingin er í nýju hverfi sem
er í uppbyggingu sunnan við núverandi byggð á Selfossi. Byggingin er steypt, tvær hæðir auk
kjallara/lagnagangs og er fyrsti áfangi 2500m2 að grunnfleti. Mannvirkið er klætt að utan, með steyptri
loftaplötu og viðsnúnu þaki. Verkið felst í uppsteypu og fullnaðarfrágangi hússins bæði úti og inni.
Verkinu á að vera lokið 30.06.2022 og kennsla að hefjast í nýjum glæsilegum skóla haustið 2022.
Mikil ánægja er með að hafa náð samningum við ÞG-verk sem er þaulreyndur verktaki.
Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar stýrir verkefninu fyrir hönd sveitarfélagsins og hefur undirbúningur gengið vel.
Við undirritun sátu Tómas Ellert Tómasson formaður eigna- og veitunefndar, Þorvaldur Gissurarson eigandi ÞG-verk, Gísli Halldór bæjarstjóri og Þorsteinn Hjartarson sviðsstjóri fjölskyldusviðs.