Tilkynning frá Selfossveitum
Vegna viðgerðar á stofnlögn á Eyrarbakka verður heitavatnslaust miðvikudaginn 29.apríl við öll hús vestan Háeyri og einnig við Túngötu. Aðgerðir hefjast um kl.9 um morguninn og standa yfir fram eftir degi.
Reynt verður að flýta aðgerðum eins og hægt er. Ef einhver óþægindi verða vegna þessara aðgerða er beðist velvirðingar á því.
Veitustjóri