Um 50 manns tóku þátt í skólaþingi um framtíð skólastarfs við ströndina
Um 50 manns sóttu skólaþing um framtíð skólastarfs á Eyrarbakka og Stokkseyri sem haldið var 19. október.

Þar komu saman foreldrar, starfsfólk, sveitarstjórnarfólk og aðrir hagaðilar til að ræða framtíðarskipulag skólamála við ströndina. Eva Magnúsdóttir frá Podium stýrði skólaþinginu og mun vinna niðurstöður þess. Tilgangur fundarins var að skapa vettvang fyrir samtal um framtíð skólastarfs við ströndina.
Sérstaklega var óskað eftir þátttöku foreldra og forráðamanna nemenda í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri og foreldra elstu barna í leikskólanum Strandheimum.
Einnig var kennurum og öðru starfsfólki skólanna, sveitarstjórnarfulltrúum og nefndarmönnum boðið að taka þátt. Áhersla var lögð á að ólík sjónarmið fengju að heyrast og að reynsla og hugmyndir skólasamfélagsins nýttust við undirbúning ákvarðana um framtíðarskipulag skólastarfsins.
Sameiginleg sýn til framtíðar
Viðfangsefni samtalsins voru meðal annars framtíð skólahúsnæðis á Eyrarbakka og Stokkseyri og hvernig áfram megi efla gæði náms, kennslu og skólastarfs í heild.
Sameiginlegt markmið er að börnum líði vel, að þau fái góða menntun og tækifæri til að vaxa, læra og dafna í öruggu og hvetjandi umhverfi. Með velferð, nám og framtíð barnanna að leiðarljósi er stefnt að því að leggja grunn að sameiginlegri sýn á öflugt og farsælt skólastarf á Eyrarbakka og Stokkseyri.


